
Einn daginn spurðir þú mig ;
Hvað er mikilvægara ég eða lífið ?
og ég svara lífið !
Þá ferð þú og verður sár án þess að vita að þú
sért líf mitt..
Alltí einu klukkan hálf tólf á mánudegi fékk ég þá löngun að
blogga.. vei!
Skólinn er byrjaður og má með sanni segja að hann byrjaði á
milljón, endalaust mikið að gera en það er búið að vera alveg
endalaust gaman í skólanum upp á síðkastið, við stelpurnar erum
helst búnar að horfá Borat í öllum hléum og svo kemur auðvitað
myndavélin hennar Barböru steerklega inn í öll 5 mín.
hlé!
Á
laugardaginn síðast liðinn gerðist hræðilegur atburður, maður var
drepinn á Pravda. Maðurinn var stunginn til bana, og dó samstundis,
votta innilega samúð mína.
Nemó er að fara á fullt núna en byrjaði sérstaklega í gær. Við
tókum upp myndbandið og einkennist það af Baby Oil og Sveittri
stemmningu!! .. kemur allt í ljós, þetta er flottasta myndband sem
Nemó hefur verið með frá upphafi mundi ég segja! Það er geggjað
..
Mætti niðrí Austurbæ klukkan átta um morguninn, var þar að farða,
og svo skipaði Pitti okkur förðunardömum að vera með í myndbandinu.
Ég var svo beðin um að skreppa frá tökum upp á Apótek -
veitingastaðinn, en þar var verið að mynda appelsín auglýsingu, og
farðaði ég fyrir hana og svo beint aftur niðrí Austurbæ.
Kom heim dauðþreytt og sofnaði við það að kveikja á tölvunni
klukkan hálf níu takk fyrir!!
Ólöf kemur til mín á fimmtudaginn!! VEI .. Ég fer reyndar á
footloose og hún á tónleika um kvöldið, en svo kúrum við saman
eftir það....
Ég
svaf í fjórtán klukkutíma í nótt, svaf til ellefu!! en við mæðgur
vorum báðar veikar í dag. Byrjuðum á Sex and the City - fyrstu
seríu, en ég fékk allar þáttaraðirnar í jólagjöf frá ömmu &
afa. Og höfðum það bara kósý.
Ég asnaðist svo til að fara á æfingu! Nei, ég stórslasaði mig þar
auðvitað, tognaði í náranum, get nánast ekki gengið .. mjög sár í
grímunni minni einsog "ysta" stelpur segja..
Setti myndir frá áramótunum inn! þær eru undir myndir
2007

Annars er ég bara búin að vera að hanga með Viktoríu, Omma3000
og Stonie aðallega.. Luv á ykkur 
Jæja, ætla að fara að halla mér, bið að heilsa ykkur
Aþenan
p.s. afhverju elskar maður rúmið sitt mest af
öllu?